Norræna hönnunarteymið 1+1+1 gaf nýlega út glæsilegt veftímarit um samstarf þeirra við Aurora velgerðarsjóð. 1+1+1 hópurinn er samstarfsverkefni hönnunarteymisins Hugdettu frá Íslandi, Aalto+Aalto frá Finnlandi og hönnuðarins Petru Lilju frá Svíþjóð, en í sameiningu vinna þau að tilraunakenndum hönnunarverkefnum.
Samstarf 1+1+1 og Aurora hófst árið 2017 með þátttöku þeirra í verkefninu Sweet Salone, þar sem hópurinn hannaði nytjahluti sem nú hafa verið framleiddir af hæfileikaríku handverksfólki frá Sierra Leone úr þarlendum hráefnum.
Afrakstur samvinnunnar var húsbúnaðarlínan 1+1+1+Sweet Salone sem var frumsýnd á HönnunarMars 14. mars s.l. í Mengi. Í nýju vörulínunni mætast ólíkir heimar norrænnar hönnunar og afrísks handverks, og fékk hún frábærar viðtökur hjá þeim fjölda fólks sem mætti á opnunina. Sala á vörunum fór frábærlega af stað strax á fyrsta degi, enda um bæði nýstárlega og kraftmikla hönnun að ræða.
Upplifunin af Sierra Leone og samstarfið við afríska handverksfólkið hafði mikil áhrif á meðlimi 1+1+1 eins og kemur berlega fram í veftímaritinu sem er mjög fallega hannað og glæsilegt að allri gerð.
1+1+1+Sweet Salone vörulínan verður áfram til sölu í versluninni Geysir Heima.