Kraumsverðlaunahafar 2022!

15.12.22

6 LISTAMENN OG HLJÓMSVEITIR HLJÓTA KRAUMSVERÐLAUNIN 2022
Innilega til hamingju:
· Final Boss Type ZERO – 1000 Cuts
· gugusar – 12:48
· KUSK – Skvaldur
· Kvikindi – Ungfrú Ísland
· Oh Mama – Hamraborg
· Una Torfa – Flækt og týnd og einmana
Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir, eða gugusar, er að hljóta sín önnur Kraumsverðlaun á ferlinum, en hún hlaut fyrst verðlaunin fyrir frumraun sína, Listen to This Twice, árið 2020. Þetta er í fyrsta sinn fjögur ár sem listamaður eða hljómsveit hlýtur sín önnur Kraumsverðlaun.
Kraumsverðlaunin eru veitt fyrir þær íslensku hljómplötur er þykja skara fram úr hvað varðar gæði, metnað og frumleika. Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa verðlaunin síðustu ár má nefna Hildi Guðnadóttur, Daníel Bjarnason, Hjaltalín, Lay Low, FM Belfast, Retro Stefson, Cell7 og Sóley.
Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa rúmlega áttatíu listamenn og hljómsveitir hlotið verðlaunin fyrir plötur sínar frá því verðlaunin voru fyrst veitt árið 2008, flestir snemma á ferli sínum. Þetta er í fimmtánda skiptið sem verðlaunin eru veitt!
Við hlökkum til að fylgjast með þessu hæfileikaríka fólki og óskum þeim enn og aftur innilega til hamingju!

Myndir tók Brynjar Þrastarson.

The Journey of Margret Yankin Mansaray

The Journey of Margret Yankin Mansaray

                                                                                                                                                                                                      We are thrilled to highlight the inspiring journey of Margret...

Aurora Foundation Celebrates Grand Opening of The Aurora House

Aurora Foundation Celebrates Grand Opening of The Aurora House

On February 5, 2025, Aurora Foundation marked a monumental milestone with the grand opening of its new office and shop, The Aurora House, located at 35 Fraser Street, Freetown, Sierra Leone. This event, attended by esteemed government officials, UN agencies, nonprofit...