Kraumslistinn 2022 opinber!

01.12.22

Það er komið að því, Kraumslistinn 2022 hefur verið gerður opinber!
Við erum gríðarlega hreykin af því að standa fyrir þessum verðlaunum. Að sjá Kraumslistann og Kraumsverðlaunin veitt ár hvert og styrkja með þeim listamenn í íslensku samfélagi veitir okkur mikla ánægju og fyllir okkur stolti.

Plöturnar sem skipa listann í ár eru:

Al­freð Drexler – Drexler’s Lab

Ari Árel­íus – Hiat­us Ter­ræ

Ástþór Örn – A machine that runs on blood

Final Boss Type ZERO – 1000 Cuts

Fríða Dís Guðmunds­dótt­ir – Lip­stic On

Guðir hins nýja tíma – Ég er ekki per­vert, ég er spæj­ari

gugus­ar – 12:48

Kraft­galli – Kú­lomb

Kruklið – SAM­HERJI: The musical

KUSK – Skvald­ur

Kvelja – Andþrot

Kvik­indi – Ung­frú Ísland

Lilja María Ásmunds­dótt­ir & Ines Zin­ho – In­ternal Hum­an

Oh Mama – Hamra­borg

Óskar Kjart­ans­son – Gork

Ronja – 00000

Siggi Olafs­son (Berg­lind Ágústs­dótt­ir) – Lost at war

Skur­ken – Dag­ur

Stirn­ir – Beautif­ul Sum­mer, Big Stjarna

Ultraf­l­ex – In­finite Well­ness

Una Torfa – Flækt og týnd og einmana

Dómnefndina skipuðu: Árni Mathíasson (formaður dómnefndar), Arnar Eggert Thoroddsen, Helga Þórey Jónsdóttir, María Lilja Þrastardóttir, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Trausti Júlíusson og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir.

Nálgast má lista yfir haldhafa Kraums tónlistarverðlaunana 2021 hér og Kraumslistann (2021) í heild sinni hér. Á meðal listamanna sem hlotið hafa Kraumsverðlaunin frá því þau voru fyrst veitt árið 2008 má nefna GDRN, Ásgeir, Hildi Guðnadóttur, Daníel Bjarnason, Hjaltalín, Lay Low, FM Belfast, Retro Stefson, Moses Hightower, Sóley, Mammút, Inspector Spacetime og fjölmörg fleiri. Kraumsverðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2008, þau eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Tilgangur verðlaunanna er að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðummetnaði og frumleika. Allar útgáfur íslenskra listamanna eru gjaldgengar til verðlaunanna – hvort sem þær koma út á geisladisk, vínyl eða á netinu. Listamenn og hljómsveitir þurfa ekki að sækja sérstaklega um að plötur þeirra séu teknar til greina af dómnefnd eða greiða þátttökugjald.

The Journey of Bintu Jibao

The Journey of Bintu Jibao

                                                                                                                                                                                      Bintu Jibao, one of 18 women selected for the UNDP Growth Accelerator Programme, is...