Við kynnum með stolti tilnefningar til Kraumsverðlaunanna i ár með birtingu Kraumslistans 2018.
Þetta er í ellefta sinn sem Kraumslistann er birtur yfir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika.
Greinilegt er að mikil gróska er í íslensku tónlistarlífi hvað útgáfurstafsemi varðar, enda fór dómnefndin í gegnum 343 íslenskar plötur og útgáfur sem komu út á árinu við val sit. Dómnefndin mun nú velja þær sex breiðskífur af Kraumslistanum sem hljóta munu Kraumsverðlaunin 2018.
KRAUMSLISTINN 2018 – ÚRVALSLISTI KRAUMSVERÐLAUNANNA:
– Andi – Allt í einu
– asdfhg.. – Örvæntið ekki
– Auður – Afsakanir
– aYia – aYia
– bagdad brothers – JÆJA.
– Birnir – Matador
– BRÍET – 22.03.99
– Cyber (Unofficial: CYBER) – BIZNESS
– Elli Grill – Pottþétt 2018
– GDRN – Hvað ef
– GYDA (Gyda Valtysdottir) – Evolution
– Hekla – Á
– Íbbagoggur (Héðinn Finnsson) – Le quatuor diabolique inexistant: trois pièces sinistres d’Íbbagoggur
– Johnny Blaze & Hakki Brakes – Vroom Vroom Vroom
– Jónbjörn – Isms
– Kælan Mikla – Nótt eftir Nótt
– Nordic Affect – He(a)r
– Ragga Holm – Bipolar
– ROHT – Iðnsamfélagið og framtíð þess
– Sideproject- isis emoji
– Sigrún – Onælan
Kraumsverðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Allar útgáfur íslenskra listamanna eru gjaldgengar til verðlaunanna – hvort sem þær koma út á geisladisk, vínyl eða á netinu.
Kraumsverðlaunin voru fyrst veitt árið 2008 og hefur verið úthlutað árlega síðan. Alls hafa 51 hljómsveitir og listamenn hlotið verðlaunin, á meðan tæplega tvö hundruð listamenn og hljómsveitir hafa verið tilnefnd til þeirra með því að komast á Kraumslistann.
MYND með frétti: Cyber sem voru meðal þeirra sex listamanna og hljómsveita sem hlutu Kraumsverðlaunin 2017 og eru tilnefndar að nýju til verðlaunanna í ár.
DÓMNEFND
Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af tólf manna dómnefnd sem skipuð er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Andrea Jónsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Benedikt Reynisson, Birna María Másdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Sandra Barilli, Trausti Júlíusson og Óli Dóri.
Frekari upplýsingar um Kraumsverðlaunin og fyrri verðlaunhafa má finna hér: http://kraumur.is/forsida/kraumsverdlaunin/