Kraumur og Hönnunarsjóður Auroru buðu í Götu-partý á Hönnunarmars

15.03.15

Hljómsveitir og tónlistarmenn, hönnuðir og arkitektar mættust í pop-up borg framtíðarinnar í porti Listasafns Reykjavíkur laugardagskvöldið 14.mars í Götu-partý Kraums og Hönnunarsjóðs Auroru.
Þeir tónlistarmenn sem komu fram voru: Retro Stefson, Sin Fang, Samaris, Snorri Helgason, Bjartey & Gígja úr Ylju, Valdimar Guðmundsson & Örn Eldjárn.  Viðburðahönnuðir kvöldsins voru Theresa Himmer og Brynhildur Pálsdóttir.

Í Porti Hafnarhússins var verkefnið Hæg breytileg átt með sýningu sem varpar ljósi á íbúðir og hverfi framtíðarinnar.  Þetta kvöld umbreyttist sýningin í lifandi framtíðarborg þar sem á einni götunni var blásið til partýs með eðal „street food“ sölubásum og börum.

Lengi hefur staðið til að dóttursjóðir Auroru gerðu verkefni saman og var einstaklega ánægjulegt að sjá hvað samvinnan milli tónlistarfólksins og hönnuðanna gekk vel sem endurspeglaðist í ógleymanlegu kvöldi.

The Journey of Margret Yankin Mansaray

The Journey of Margret Yankin Mansaray

                                                                                                                                                                                                      We are thrilled to highlight the inspiring journey of Margret...

Aurora Foundation Celebrates Grand Opening of The Aurora House

Aurora Foundation Celebrates Grand Opening of The Aurora House

On February 5, 2025, Aurora Foundation marked a monumental milestone with the grand opening of its new office and shop, The Aurora House, located at 35 Fraser Street, Freetown, Sierra Leone. This event, attended by esteemed government officials, UN agencies, nonprofit...