Hönnunarsjóður Auroru kynnti á HönnunarMars nýtt verkefni á sviði byggða- og íbúðaþróunar. Hugmyndin er að efna til hugmyndavettvangs, þar sem einblínt verður á að vinna þverfaglega og gefa ungum hönnuðum, arkitektum, tæknimenntuðum einstaklingum og hugvísinda- og raunvísindafólki tækifæri til að mynda þverfagleg teymi til að leysa húsnæðisþraut framtíðarinnar. Verkefnið er í mótun og hefur Hönnunarmiðstöð, fulltrúar Reykjavíkurborgar og Samtaka Iðnaðarins lýst sig reyðubúna til samstarfs. Auglýst verður eftir þátttakendum í verkefnið á næstunni og það kynnt nánar. Sjá nánar á heimasíðu Hönnunarsjóðs Auroru
Lettie Stuart Pottery Staff and Students Retreat: A Day of Reflection, Planning, and Unity
On the 27th of February, the Lettie Stuart Pottery staff and students from the Pottery School gathered at the serene Kent Beach for a transformative staff retreat. Organized by Lettie Stuart Pottery, the event was a perfect blend of reflection, planning, and team...