Tíu milljónum úthlutað til íslenskra hönnuða.

05.10.09

Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði þann 1. október síðastliðinn, 10 milljónum króna til átta íslenskra hönnuða og verkefna.

Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði þann 1. október síðastliðinn, 10 milljónum króna til átta íslenskra hönnuða og verkefna. Auk þess voru kynnt tvö ný verkefni Hönnunarsjóðsins sem er ætlað að efla faglegar stoðir hönnunar á Íslandi og fjölga tækifærum fyrir nýútskrifaða hönnuði á vinnumarkaðnum. Annarsvegar með ráðgjöf fyrir styrkþega sjóðsins og hinsvegar með því að bjóða upp á starfsreynslustyrki fyrir nýútskrifaða hönnuði.

Úthlutunin fór fram í nýju húsnæði sjóðsins í Vonarstræti en þar munu báðir dóttursjóðir Auroru velgerðasjóðs; Hönnunarsjóður Auroru og Tónlistarsjóðurinn Kraumur deila með sér húsnæði, og sjaldan hefur götuheiti átt jafn vel við starfsemina og nú.

Þeir sem hlutu styrki að þessu sinni voru Andrea Maack, Bóas Kristjánsson, Charlie Strand, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, Laufey Jónsdóttir, Snæbjörn Stefánsson, Sonja Bent og verkefnið „Stefnumót bænda og hönnuða“.

Einnig voru kynnt tvö ný verkefni Hönnunarsjóðsins en þeim er ætlað að efla faglegar stoðir hönnunar á Íslandi og fjölga tækifærum fyrir nýútskrifaða hönnuði á vinnumarkaðnum. Annarsvegar með ráðgjöf fyrir styrkþega sjóðsins og hinsvegar með því að bjóða upp á starfsreynslustyrki fyrir nýútskrifaða hönnuði.

Um er að ræða seinni úthlutun þessa fyrsta starfsárs Hönnunarsjóðs Auroru, en 20. maí s.l. var úthlutað 12,5 milljón til níu íslenskra hönnuða og voru verkefnin af ýmsum toga. Hönnunarsjóðurinn hefur því úthlutað samtals 22,5 milljón til sautján hönnuða og verkefna á Íslandi á árinu.

Nánari útlistun á styrkþegum og verkefnum þeirra:

ANDREA MAACK
VERKEFNI: ILMVATN
Verkefnið er unnið í samstarfi við franska ilmvatnsfyrirtækið Apf aromes and parfums, en ilmirnir eru hannaðir eftir myndlistarverkum Andreu. Styrkurinn, að upphæð 2.000.000 kr er veittur til vöruþróunar og markaðssetningar þriggja ilmvatna Andreu. Tímarammi verkefnis er áætlaður tvö ár.
http://andreamaack.com/

BÓAS KRISTJÁNSSON
VERKEFNI: HERRAFATALÍNA 8045
Styrkurinn, að upphæð 1.000.000 kr er veittur til hönnunar, vöruþróunar og kynningarstarfs á nýrri línu fyrir Haust/Vetur 2010, sem verður sýnd á Paris Fashion Week í janúar 2010. Bóas kynnti fyrstu fatalínu sínu í París sumarið 2009 og hefur hlotið athygli erlendra fjölmiðla í kjölfarið. Tímarammi verkefnis er áætlaður 4 mánuðir.
http://www.kristjansson-boas.com/

CHARLIE STRAND
VERKEFNI: BÓKIN FUTUREPROOF
Verkefnið er metnaðarfull leið til kynningar á íslenskri fatahönnun erlendis. Styrkurinn, að upphæð 1.000.000 kr er veittur til lokafrágangs bókarinnar. Gert er ráð fyrir að hún komi út á vormánuðum 2010.
http://www.charliestrand.com/

GUÐRÚN LILJA GUNNLAUGSDÓTTIR
VERKEFNI: GLEYM MÉR EI. DUFTKER OG LÍKKISTUR ÚR ENDURUNNUM EFNUM.
Verkefnið var einnig styrkt í maí s.l. en síðan þá hefur verið unnið ötullega í verkefninu og mikilvæg skref yfirstaðin. Styrkurinn, að upphæð 1.000.000 kr. er veittur til mótagerðar fyrir framleiðslu. Stefnt er á að fyrsta varan líti dagsins ljós á vormánuðum 2010.
http://www.bility.is/

SNÆBJÖRN STEFÁNSSON
VERKEFNI: BARNALEIKFÖNG
Verkefnið er ferskt innlegg í þróun barnaleikfanga í heiminum í dag. Styrkurinn, að upphæð 500.000 kr. er veittur til vöruþróunar.

SONJA BENT
VERKEFNI:HERRAFATALÍNA
Styrkurinn, að upphæð 750.000 kr er veittur til að mæta kostnaði við kynningarstarf og sölu herralínu Sonju í New York, en henni hefur verið boðin þáttaka í „Project Space“ á Manhattan. Tímarammi verkefnisins er 6 mánuðir.
http://sonjabent.com/

LAUFEY JÓNSDÓTTIR
VERKEFNI: FATALÍNA FYRIR GLÓFA. UM ER AÐ RÆÐA FYRSTA STYRKINN SEM VEITTUR ER TIL AÐ FJÖLGA TÆKIFÆRUM FYRIR NÝÚTSKRIFAÐA HÖNNUÐI Á VINNUMARKAÐI.
Verkefnið er samstarfsverkefni Laufeyjar og Glófa sem hófst í gegnum verkefni Hönnunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs „Hönnun til útflutnings“. Laufey hefur hannað nýja línu fyrir Glófa sem bera mun sitt eigið nafn en vera kennt við Laufeyju. Styrkurinn, að upphæð 1.000.000 kr. er veittur til þess að leggja lokahönd á línuna og fylgja henni úr hlaði með kynningum innanlands og utan með Glófa. Tímarammi verkefnis er 6 mánuðir.

STEFNUMÓT BÆNDA OG HÖNNUÐA
VERKEFNI: MATARHÖNNUN.
Stefnumót bænda og hönnuða er verkefni innan Listaháskóla Íslands. Þegar námskeiðinu líkur á vorin, ræður Listaháskólinn 3-4 nýútskrifaða hönnuði til að fullvinna vörur sem komið hafa út úr námskeiðinu undir handleiðslu reyndar hönnuða. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu og þverfaglega vinnu með sérfræðingum t.d. frá Matís. Hönnunarsjóðurinn mun styrkja einn þessara nýútskrifuðu hönnuða í tvö tímabil, samtals um 1.000.000 kr. Tímarammi verkefnis er áætlaður tvö ár.

Nánari upplýsingar:
Hlín Helga Guðlaugsdóttir frkv.stj.  Hönnunarsjóðsins, s. 772-1200 / hlin@honnunarsjodur.is

Lettie Stuart Pottery School Exhibition

Lettie Stuart Pottery School Exhibition

We are delighted to share the resounding success of the recent Pottery School Exhibition held at Lettie Stuart Pottery in Waterloo on March 14th. The event, hosted by Aurora Foundation, was a vibrant celebration of the remarkable progress achieved by the students of...

Business Model Canvas training – IR Bootcamp

Business Model Canvas training – IR Bootcamp

On March 12th, the Aurora Foundation Training Center buzzed with entrepreneurial energy as we hosted a dynamic Business Model Canvas training session tailored for IR Bootcamp startup businesses. Facilitated by our adept Aurora Impact Programme Manager, Mavis Madaure,...

Successful compelition of ICT Webpage Development Overview Course

Successful compelition of ICT Webpage Development Overview Course

We are excited to share the successful conclusion of our recent 2-week ICT Web Development overview and outline course, finalized on February 27th at the Aurora Office Training Center. Participants joined us on February 12th for a week-long exploration of ICT Webpage...