Aurora velgerðasjóður styrkir verkefni í Nepal

26.05.09

Aurora velgerðasjóður styrkir verkefni í Nepal „Shelter for Life“ sem er á vegum bandarísku hjálparstofnunarinnar „Beyond Tears Worldwide“

Tilgangur verkefnisins er að skapa umhverfisvæn heimili „Shelter for Life“, með því að útvega þorpsbúum sólarorku og reyklausar eldavélar. Með því skapast hreint loft og ljós á hvert heimili en hjálparstofnunin einbeitir kröftum sínum nú að Mugu héraði í Nepal.

Vegna lélegs aðbúnaðar í fjallaþorpum Nepals eru það aðeins um 50% barna sem ná eins árs aldri og meðalaldurinn er 36 ár. Öndunarfærasjúkdómar eru megin orsök þessarar háu dánartíðni og mun því þetta verkefni bjarga fjölda mannlífa. Reyklausar eldavélar og sólarorkan mun einnig minnka notkun á eldivið um 65% og þar af leiðandi ágang á ört minnkandi skóglendi Himalayafjalla.

Útvaldir nemendur og starfsmenn Leysin American School í Sviss undir leiðsögn Lou Felo, starfsmanni hjálparstofnunarinnar „Beyond Tears Worldwide“ hafa farið árlega til Mugu héraðs í Nepal og unnið að því að gera þetta að veruleika.
Í mars síðastliðnum fór hópur nemenda frá Sviss til þorpsins Jhamphay í Mugu héraði og setti upp 36 sólarorkupanela og eldavélar við öll híbýli þorpsins. Vonandi verður það til að auka lífsgæði þorpsbúa og afkomenda þeirra til muna, bæði líkamlega og andlega.

Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit

Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit

Aurora Foundation is proud to have sponsored the inaugural Inkundula Festival, a vibrant three-day celebration of Sierra Leone’s dynamic arts and culture scene. The festival began on the evening of October 31st at the Aurora House, where the atmosphere was alive with...

The Journey of Bintu Jibao

The Journey of Bintu Jibao

                                                                                                                                                                                      Bintu Jibao, one of 18 women selected for the UNDP Growth Accelerator Programme, is...