Kraumur tónlistarsjóður kynnir í dag fyrstu úthlutanir sínar og stuðning við íslenskt tónlistarlíf, tónlistarmenn og hljómsveitir árið 2009. Áhersla er lögð á innlend verkefni og starfsemi listamanna og hljómsveita hérlendis í stuðningi Kraums í ár, allt frá plötugerð til námskeiða- og tónleikahalds á landsbyggðinni.
Kraumur tónlistarsjóður kynnti í gær, 2. apríl fyrstu úthlutanir sínar og stuðning við íslenskt tónlistarlíf, tónlistarmenn og hljómsveitir árið 2009. Áhersla er lögð á innlend verkefni og starfsemi listamanna og hljómsveita hérlendis í stuðningi Kraums í ár, allt frá plötugerð til námskeiða- og tónleikahalds á landsbyggðinni.
Meðal þeirra listamanna sem Kraumur mun styðja og vinna með á árinu eru Hjaltalín, Lay Low, Sindri Már Sigfússon (Sin Fang Bous / Seabear), Ólafur Arnalds, Ólöf Arnalds, Mógil, For a Minor Reflection og Nordic Affect. Kraumur mun jafnframt styðja við tónleika fjölda ungra listamanna á Stofutónleikum Listahátíðar í Reykjavík, námskeið og vinnusmiðjur á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði, Tónlistarhátíð unga fólksins í Kópavogi og Reykjavik Jazz Performance vinnusmiðjur fyrir unga og upprennandi listamenn.
Kraumur mun sjálfur standa fyrir Hljóðverssmiðjum í Tankinum á Flateyri með verðlaunasveitum Músíktilrauna 2009 og þátttöku reyndari tónlistarmanna. Innrásin, átak Kraums til stuðnings tónleikahaldi á landsbyggðinni, heldur áfram af fullum krafti. Að þessu sinni er kynntur stuðningur við hljómsveitirnar Sudden Weather Change, Retro Stefson, Árstíðir, Nögl, Molestin o.fl. í tengslum við Innrásina, sem m.a. munu koma fram á tónlistarhátíðunum Eistnaflugi á Neskaupsstað og Lunga á Egilsstöðum. Kraumur mun jafnframt styðja við Trúbatrix, nýtt tengslanet og tónlistarhóp sem samanstendur af íslenskum tónlistarkonum sem flytja frumsamda Íslenska tónlist, til tónleikahalds innanlands. Alls hefur tæpum 11 milljónum nú verið úthlutað í beinan stuðing til listamanna og hljómsveita, eigin verkefna Kraums og samstarfsverkefna sjóðsins.
Nánari upplýsingar eru á vef sjóðsins www.kraumur.is
Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit
Aurora Foundation is proud to have sponsored the inaugural Inkundula Festival, a vibrant three-day celebration of Sierra Leone’s dynamic arts and culture scene. The festival began on the evening of October 31st at the Aurora House, where the atmosphere was alive with...