Glæsilegir útitónleikar

03.07.08

Glæsilegir útitónleikar voru haldnir við gömlu þvottalaugarnar í Laugardalnum síðastliðinn laugardag þar sem Björk, Sigur Rós, Ólöf Arnalds og Ghosdigital komu fram.

Glæsilegir útitónleikar með yfirskriftinni Náttúra voru haldnir við gömlu þvottalaugarnar í Laugardalnum síðastliðinn laugardag þar sem að Björk, SigurRós, Ólöf Arnalds og Ghosdigital komu fram. Tónleikarnir tókust framar vonum og almenn gleði og góður andi ríkti hjá áhorfendum að þeim loknum.

Aurora velgerðasjóður var meðal þeirra sem styrktu þessa tónleika þar sem öllum var heimill aðgangur án endurgjalds og þegar hæst stóð voru um 30 þúsund manns í brekkunni við þvottalaugarnar.
Þessi staðsetning var einkar vel til fundinn og Þvottabrekkan hefur sannað sig sem tónleikastaður, falleg staðsetning, miðsvæðis og tréin sem umkringja svæðið gera það að verkum að það er meira log en á mörgum öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.

Tónleikarnir hófust kl. 17:00 og margir tónleikagestanna gerðu sér glaðan dag,  mættu vel búnir með börn og buru, teppi og nesti, nutu veðurblíðunnar og fallegra tóna fram eftir kvöldi.
Tónleikarnir voru einnig sýndir beint á netinu, þar sem að 2,5 milljónir manna fylgdust með.

First Artisan Meet-Up at Aurora House:

First Artisan Meet-Up at Aurora House:

On Tuesday, November 12th, the Aurora Foundation hosted its very first Artisan Meet-Up at the Aurora House, marking a significant milestone in our ongoing efforts to support and empower local artisans in Sierra Leone. This event brought together a vibrant group of...

Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit

Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit

Aurora Foundation is proud to have sponsored the inaugural Inkundula Festival, a vibrant three-day celebration of Sierra Leone’s dynamic arts and culture scene. The festival began on the evening of October 31st at the Aurora House, where the atmosphere was alive with...