Að þessu sinni bárust sjóðnum 50 umsóknir úr öllum greinum hönnunar og sem fyrr eru verkefnin sem úthutað er til af fjölbreyttum toga. “Við leitumst við að velja verkefni sem með einhverjum hætti eru uppbyggileg fyrir samfélagið og byggja á góðri hönnun og hugviti og eru unnin af alúð.” segir Guðrún Margrét Ólafsdóttir, framkvæmdar- stjóri Hönnunarsjóðs Auroru.
Í þessari haustúthlutun sjóðsins hljóta alls 7 verkefni styrki og þar af eru þrjú verkefni á sviði fatahönnunar. Eitt er verkefni um uppbyggingu nýs vörumerkis sem sækir innblástur í myndverk hönnuðarins og áhrifamáttar jurta. Annað er fatamerki sem hefur náð fótfestu á íslenskum markaði og framundan eru tilraunir til sóknar á erlendan markað og það þriðja er markaðsátak í Bandaríkjunum á vel þekktu íslensku vörumerki. Einnig er úthlutað til verkefnis þar sem markmiðið er að auka vellíðan ungra barna og verkefnis um hönnun og markaðssetningu nýrra leturgerða. Úthlutað er til rannsóknarverkefnis nýútskrifaðs arkitekts og síðast en ekki síst er úthlutað til nýjasta samstarfsverkefnis hönnunarfélaganna um útgáfu nýs hönnunartímarits.
HILDUR YEOMAN (2.000.000)
Hildur Yeoman fatahönnuður fær styrk til víðtækrar vöruþróunar og uppbyggingar eigin vörumerkis. Þar hefur hún ásamt samstarfsfólki sínu unnið á nýstárlegan hátt með flóru Íslands, bæði á huglægan og fagurfræðilegan hátt. Kristbjörg Kristmundsdóttir grasakona er einn af samstarfsaðilum Hildar í verkefninu. Kristbjörg blandar orkugefandi seiði, sem Hildur myndgerir útfærslu af. Myndefnið er blanda af ljósmyndum af jurtum og teikningum Hildar.
Með myndefninu stendur til að skapa fjölbreyttar vörur með aðal áherslu á fatnað.
Takmark þeirra er að ná fram góðri orku og heilandi öflum jurtanna í efnið. Samhliða vöruþróun, er verkefnið skrásett af Hildi og Daníel Björnssyni myndlistamanni og eiginmanni Hildar.
Stefnt er að því að vinnuferlið og uppskriftir af seiðum Kristbjargar verði gefið út á bók.
Sjá nánar á www.hilduryeoman.com
OR TYPE (1.500.000)
Or Type leturútgáfa fær styrk til vöruþróunar og markaðssetningar á Or Type, sem er fyrsta og eina sérhæfða leturútgáfa Íslands.
Leturútgáfan var formlega opnuð með sýningu á HönnunarMars 2013, en það eru þeir Guðmundur Ingi Úlfarsson og Mads Freund Brunse sem standa á bakvið útgáfuna. Saman starfa þeir einnig undir nafninu GUNMAD og hafa unnið til fjölda FÍT verðlauna og viðurkenninga. Or Type selur letur í gegnum netið. Or Type hefur á sínu fyrsta eina og hálfa starfsári vakið athygli innan grafísku hönnunarsenunar og selt letur til yfir 20 landa um allan heim.
Sjá nánar á www.ortype.is
RÓRÓ (1.500.000)
RóRó fær styrk til hönnunar umbúða og kynningarefnis og þátttöku í vörusýningum erlendis.
Brúðan Lúlla er þeim eiginleikum gædd að hún hefur bæði hjartsláttar og öndunarhljóð.
Rannsóknir sýna að brúðan hefur góð og merkjanleg áhrif á svefn barna og stuðlar að auknu jafnvægi í öndun og hjartslætti ungbarna. Brúðan er sérstaklega þróuð með tilliti til aðstæðna og þarfa fyrirbura.
Það er fyrirtækið RóRó sem stendur á bakvið verkefnið.
RóRó er sprotafyrirtæki sem stofnað var í lok árs 2011 af Eyrúnu Eggertsdóttur. Upphaf verkefnisins má rekja til vinnu Eyrúnar í Hugmyndahúsi háskólanna, frumkvöðlaseturs sem starfrækt var hér í Reykjavík um nokkurt skeið eftir hrun og hlaut verkefnið Gulleggið, verðlaun í frumkvöðlakeppni Klak Innovit árið 2011. Markmið fyrirtækisins RóRó er að þróa vörur sem bæta vellíðan ungra barna og er brúðan Lúlla fyrsta afurð fyrirtækisins. Hún er nú, eftir nokkurra ára þróun, tilbúin og bíður markaðssetningar. Að vöruþróun brúðunnar stendur öflugt þverfaglegt teymi. Eyrún sjálf er menntuð í sálfræði og hefur auk þess lokið grunnámi í hönnun en aðal hönnuður fyrirtækisins er grafíski hönnuðurinn Birna Bryndís Þorkelsdóttir.
RóRó hefur fengið gott brautargengi við þróun brúðunnar og notið stuðnings úr opinberum sjóðum. Auk þess sem fjárfestingasjóðurinn Eyrir Invest og Margrét Árnadóttir hafa fjárfest í verkefninu. Stuðningur Hönnunarsjóðs Auroru er ætlaður til frekari þróunnar umbúða og kynningarefnis auk þátttöku í vörusýningum erlendis.
Sjá nánar www.roro.is
JÖR BY GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON (1.500.000)
JÖR fær styrk til hönnunar haustlínu fyrirtækisins fyrir árið 2015 og til kynningar og markaðssetningar vörumerkisins erlendis. Fyrirtækið Jör er stofnað árið 2012 af þeim Guðmundi Jörundssyni aðalhönnuði fyrirtækisins og Gunnari Erni Petersen lögfræðingi og framkvæmdastjóra. JÖR er hátísku fatamerki þar sem markmiðið er að hanna og markaðssetja tvær framsæknar fatalínur á hverju ári fyrir bæði karla og konur. Fyrirtækið Jör byggir á öflugu teymi hönnuða og handverksfólks sem vinna saman í hönnunarstúdiói í húsnæði fyrirtækisins við Laugaveg þar sem nánast allar frumgerðir eru unnar og fyrirtækið starfrækir eigin verslun.
Jör fékk styrk úr Hönnunarsjóði Auroru í haustúthlutun í fyrra til vöruþróunar og uppbyggingar vörumerkisins á innlendum markaði.
Verkefnið sem er framundan hjá Jör og Hönnunasjóðurinn veitir stuðning til að þessu sinni, er hönnun haustlínu fyrirtækisins fyrir veturinn 2015 og undirbúningur markaðssetningar á erlendan markað.
Sjá nánar www.jorstore.com
KATLA MARÍUDÓTTIR (500.000)
Katla Maríudóttir er nýútskrifaður arkitekt með mastergráðu frá Stokkhólmi og áður BA gráðu frá Listaháskóla Íslands. Katla fær styrk til að aðlaga og raungera áhugavert mastersverkefni sitt sem hún kallar Jarðnæði. Í mastersverkefninu leitast Katla við að skilja áhrif hinnar síbreytilegu náttúru Íslands á íbúana og byggingararfleiðina. Verkefnið sem Katla fær styrk til er forrannsókn vegna fyrirhugaðra áforma Akraneskaupstaðar um gerð heitrar upplifunarlaugar á Langasandi við Akranes. Í þeirri rannsókn mun Katla styðjast við sömu aðferðafræði við öflun og miðlun upplýsinga og hún gerir í mastersverkefni sínu.
Katla gerir ráð fyrir að efni rannsóknarinnar muni einnig nýtast við frekari stefnumótun í ferðamálum fyrir Akraneskaupstað. Verkefnið mun Katla vinna í samstarfi við Basalt arkitekta sem munu sjá um hönnun bygginga.
Sjá nánar www.katlamariudottir.com
KRON BY KRONKRON (1.000.000)
Kron by kronkron er eitt af leiðandi merkjum íslenskrar fatahönnunar. Fyrirtækið er stofnað árið 2008 af hjónunum Hugrúnu Árnadóttur og Magna Þorsteinssyni, sem jafnframt eru eigendur og hönnuðir merkisins. Vörumerkið KRON BY KRONKRON samanstendur af heilstæðri línu kvennfatnaðar og fylgihluta auk sérstæðrar skólínu. Vörumerkið hefur notið mikilla vinsælda á Íslandi og er hér selt í verslunum fyrirtækisins í Reykjavík. Auk þess sem vörumerkið á auknum vinsældum að fagna erlendis og er selt í völdum verslunum, bæði í Evrópu og Asíu.
Hönnunarsjóður Auroru hefur þrisvar áður úthlutað til Kron By Kronkron, í mismunandi þætti við uppbyggingu vörumerkisins. Kron Kron var í hópi styrkþega í fyrstu úthlutun sjóðsins árið 2009 og var stykurinn þá veittur til fyrstu kynningar á skólínu fyrirtækisins erlendis. Fyrirtækið var stofnað á umbrotatímum í íslensku samfélagi. Það hefur verið aðdáunavert að fylgjast með hvernig þessi samhentu hjón hafa náð að koma fyrirtæki sínu á þann stað sem það er í dag, þrátt fyrir oft takmörkuð fjáráð og óvænt áföll. Nýlega fékk fyrirtækið boð um að kynna Kron By Kronkron á stórum hátíðum tónlistar- og kvikmyndaiðnaðarins í Los Angeles.Stuðningur sjóðsins að þessu sinni er til þátttöku fyrirtækisins í umræddum viðburðum og til eftirfylgni mögulegra viðskiptatækifæra.
Sjá nánar www.kronbykronkron.com
TÍMARIT UM HÖNNUN OG ARKITEKTUR (800.000)
Nýstofnað hönnunartímarit er samstarfsverkefni hönnunarfélaganna sem eiga og reka Hönnunarmiðstöð Íslands. Tímaritinu er ætlað að miðla og veita innsýn í það áhugaverðasta sem er að gerast á öllum sviðum hönnunar á hverjum tíma. Ritstjóri hefur verið ráðinn grafíski hönnuðurinn Arnar Fells en aðrir í ritsjórn eru Elísabet V. Ingvarsdóttir, María Kristín Jónsdóttir og Sigriður Maack. Auk þess hefur verkefnið fagráð skipað fulltrúum allra þeirra níu hönnunarfélaga sem standa að verkefninu. Hönnunarsjóður Auroru styður verkefnið með fjárframlagi að upphæð áttahundruðþúsund til útgáfu tveggja fyrstu eintaka blaðsins. Það er von aðstandenda blaðsins að eftir það, megi vænta að verkefnið geti orðið sjálfbært.
Sjá nánar www.honnunarmidstod.is