Föstudaginn 20. nóvember mun Hönnunarsjóður Auroru og Kraumur tónlistarsjóður ásamt nýjum nágrönnum sínum í Vonarstrætinu, Hönnunarmiðstöð Íslands bjóða í innflutninspartý.
Fyrir tæpum mánuði síðan fluttu dóttursjóðir Auroru velgerðasjóðs saman í nýtt húsnæði að Vonarstræti 4b. Framkvæmdastjórar sjóðanna, Hlín Helga og Eldar eru hæstánægð með aðstöðuna og samveruna.
Hlín Helga bar hitann og þungan af framkvæmdum við lagfæringarnar á húsnæðinu en Eldar fékk það hlutverk að samþykkja allar breytingar sem hún lagði til. Hann var einnig liðtækur við húsgagnaburð og annað stúss við innflutninginn. En það er ekki annað að sjá á þessum myndum að hann sé ánægður með vinnu Hlínar Helgu og bauð strax til vinnusmiðju á vegum Útflutningsráðs íslenskrar tónlistar (ÚTÓN / IMX) um hvernig tónlistarmenn geta komið tónlist sinni á framfæri á netinu.