Útgáfuhóf á fimmtudag!

10.09.19

Fyrir tæpu ári síðan buðum við átján mismunandi tónlistarfólki að hittast og deila saman einni viku á litlu gistiheimili rétt fyrir utan Freetown. Þetta var tónlistarfólk frá Íslandi, Bretlandi og Sierra Leone sem hafði flest aldrei hist áður. Við kölluðum þetta Music Writing Week en allar væntingar um frumsamin lög voru í lágmarki. Okkur langaði að þau myndu deila reynslu og læra hvert af öðru, komandi frá svo mismunandi menningarheimum.

En þvílík orka sem átti sér stað þessa viku og sömdu þau 22 lög á aðeins þremur dögum! Og nú er komið að því að hlýða á afraksturinn. Á fimmtudag hittist stór hluti hópsins á ný í London og mun spila lögin sem við ætlum að gefa út í fyrstu hrynu og á föstudag kemur fyrsta lagið út. Tólf föstudaga í röð kemur út nýtt lag, og föstudaginn 6. desember kemur öll platan út ásamt 3 stuttum heimildarþáttum um allt ferlið.

Við hvetjum alla sem eru í London að koma og taka þátt í útgáfuhófinu!

Staður: The Jago, 440 Kingsland Rd, Dalston, London

Timidity’s: 7:30 onwards

Kaupa miða: Here

Fantacee Wiz að taka upp söngin í einu lagana

Sammi og Mark í stúdíóinu

Solo, Arnljotur og Sammi

Hildur

 

 

First Artisan Meet-Up at Aurora House:

First Artisan Meet-Up at Aurora House:

On Tuesday, November 12th, the Aurora Foundation hosted its very first Artisan Meet-Up at the Aurora House, marking a significant milestone in our ongoing efforts to support and empower local artisans in Sierra Leone. This event brought together a vibrant group of...

Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit

Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit

Aurora Foundation is proud to have sponsored the inaugural Inkundula Festival, a vibrant three-day celebration of Sierra Leone’s dynamic arts and culture scene. The festival began on the evening of October 31st at the Aurora House, where the atmosphere was alive with...