Aurora styður við Magbenteh Boarding School á ný

23.04.19

Aurora hefur nýlega ákveðið að styðja aftur við matarprógram Magbenteh Community Boarding School.

Fyrir skólaárið 2017-2018 var sett á stoðir matarprógram fyrir 186 nemendur og 10 starfsmenn, þar sem þau fengu tvær næringarríkar máltíðir á dag, 5 daga vikunnar. Aurora, á meðal annarra, studdi þetta prógram.

Áður en matarprógramminu var komið á voru nemendurnir mikið að veikjast og áttu erfitt með að einbeita sér í skólanum. Flestir höfðu engan pening milli handanna til að geta keypt sér mat yfir daginn, né voru með nesti.

Að geta veitt starfsfólkinu og nemendunum tvær máltíðir á dag skipti verulega sköpum, og sáust miklar breytingar á krökkunum bæði andlega og líkamlega. Þau voru hressari og gátu einbeitt sér mun betur. Prógrammið hjálpaði þeim líka að læra meira um mikilvægi heilsu og hreinlætis. Allir nemendur þurfa að þvo sér um hendur áður en þeir borða og þrífa svo skálina og skeiðina þegar þau eru búin. Allir fengu sína eigin skál og skeið sem veitti þeim einnig meira sjálfstæði.

Vegna allra þeirra jákvæðu áhrifa sem prógrammið hafði á nemendurna ákvað Aurora að styðja aftur við skólann, annað árið í röð, þar sem skólinn hefur ekki enn náð að tryggja fjármagn til lengdar.

First Artisan Meet-Up at Aurora House:

First Artisan Meet-Up at Aurora House:

On Tuesday, November 12th, the Aurora Foundation hosted its very first Artisan Meet-Up at the Aurora House, marking a significant milestone in our ongoing efforts to support and empower local artisans in Sierra Leone. This event brought together a vibrant group of...

Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit

Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit

Aurora Foundation is proud to have sponsored the inaugural Inkundula Festival, a vibrant three-day celebration of Sierra Leone’s dynamic arts and culture scene. The festival began on the evening of October 31st at the Aurora House, where the atmosphere was alive with...