Fimmtudaginn 3. nóvember voru almenningssalernin sem Aurora gaf íbúum Funkia, Goderich, opnuð við hátíðlega athöfn. Mikil stemning var við opnunarathöfnina og héldu þátttakendur í verkefninu tilfinningaþrungnar ræður um mikilvægi þess fyrir samfélagið að íbúarnir hefðu loks almennan aðgang að vatnssalernum. Í öllum ræðunum var mikið rætt um að láta samstarf íbúa Funkia og Auroru dafna og þróast á næstu misserum.
Nú er liðið um það bil ár síðan Aurora hóf verkefni sín í Goderich. Helsta verkefnið er rekstur á löndunarstöð og fiskvinnslu undir nafninu Neptune. Almenningssalernin ásamt nauðsynlegri skolp- og holræsagerð eru hluti stefnu Neptune um samfélagslega ábyrgð og þátttöku í nærsamfélaginu.