Bygging barnadeildar í Malaví

02.07.08

Eins og fram hefur komið styrkir sjóðurinn byggingu á nýrri barnadeild við héraðsjúkrahúsið í Mangochi héraðið í Malaví. Það er því mjög ánægjulegt að geta sagt frá því að framvinda verksins er í samræmi við væntingar.
Eins og fram hefur komið styrkir Aurora velgerðarsjóðurinn byggingu nýrrar barnadeildar við héraðssjúkrahúsið í Mangochi héraðið í Malaví.
Byggingarframkvæmdir hófust í apríl síðastliðnum og er verkið á áætlun.
Gert er ráð fyrir að barnadeildin verði tilbúin í lok árs 2008. Á hinni nýju barnadeild verða rúm fyrir 24 börn í einu og verður öll aðstaða eins og best verður á kosið. Þessi bætta aðstaða er á vissan hátt bylting í heilbrigðisþjónustu á svæðinu og eru miklar vonir bundnar við barnadeildina.
Það er að frumkvæði Sigurðar Guðmundssonar Landlæknis að ráðist var í verkefnið en hann vann á svæðinu og þekkir því vel þörfina, en jafnframt hverju hægt er að áorka með nýju barnadeildinni.

Íbúar á svæðinu eru afar þakklátir og fylgjast grannt með framkvæmdum. Þeir vita sem er að sá aðbúnaður sem þessi nýbygging veitir getur skipt sköpum í lífi lítils barns.

First Artisan Meet-Up at Aurora House:

First Artisan Meet-Up at Aurora House:

On Tuesday, November 12th, the Aurora Foundation hosted its very first Artisan Meet-Up at the Aurora House, marking a significant milestone in our ongoing efforts to support and empower local artisans in Sierra Leone. This event brought together a vibrant group of...

Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit

Inkundula Festival: A Celebration of Sierra Leone’s Creative Spirit

Aurora Foundation is proud to have sponsored the inaugural Inkundula Festival, a vibrant three-day celebration of Sierra Leone’s dynamic arts and culture scene. The festival began on the evening of October 31st at the Aurora House, where the atmosphere was alive with...