Laugardaginn 2. júlí var Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna, og Krafti, stuðningsfélagi ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, afhentar rúmar 7 milljónir króna sem safnast höfðu á vegum Hrossarækt.is með sölu happdrættismiða. Aurora velgerðasjóður tók þátt í þessu frábæra framtaki með því að leggja söfnuninni lið og lagði fram 5 milljónir króna í upphafi söfnunarinnar. Þar að auki hét Aurora því að leggja fram krónu á móti hverri krónu sem myndi safnast með sölu happdrættismiðanna. Seldir voru happdrættismiðar fyrir 1.016.000 kr. og lagði Aurora velgerðasjóður því 6.016.000 kr. í söfnunina í heild en söfnunarféð varð samtals 7.032.000 kr. sem rennur til helminga til Neistans og Krafts.
Styrkurinn var afhentur á Landsmóti hestamanna að Hólum í Hjaltadal. Stuðningur Aurora er veittur í minningu mikils hestamanns Einars Öder, sem lést á síðasta ári, og voru það Dagmar dóttir Einars, og Svanhvít, eiginkona hans sem afhentu styrkinn fyrir hönd Auroru.
Á myndinni eru frá vinstri: Snorri Kristjánsson og Magnús Benediktsson frá Hrossarækt, mæðgurnar Svanhvít Kristjánsdóttir og Dagmar Öder, Sandra Valsdóttir frá Neistanum, Berglind Jónsdóttir og Ragnheiður Davíðsdóttir frá Krafti og Hulda G. Geirsdóttir frá Hrossarækt.
First Artisan Meet-Up at Aurora House:
On Tuesday, November 12th, the Aurora Foundation hosted its very first Artisan Meet-Up at the Aurora House, marking a significant milestone in our ongoing efforts to support and empower local artisans in Sierra Leone. This event brought together a vibrant group of...