Innrásin að hefjast

18.05.08

Kraumur vekur athygli á Innrásinni; nýju átaki sem hefur það að markmiði að greiða leið tónlistarmanna til tónleikahalds á landsbyggðinni.

Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Með Innrásinni mun Kraumur styðja hljómsveitir og tónlistarmenn við tónleikhald á landsbyggðinni. Markmiðið er að auka við möguleika listamanna til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.
Hugmyndin að baki Innrásinni er m.a. sú staðreynd að stundum virðist auðveldara fyrir listamenn og hljómsveitir að spila erlendis, frekar en hérlendis. Lítill stuðningur er oft við þá sem vilja reyna fyrir sér með tónleikahaldi á landsbyggðinni. Með Innrásinni er ætlunin að styðja listamennina beint og auðvelda þeim tónleikhald innanlands með fjárhagslegum styrk, ferða- og græjustuðning. Jafnframt er stefnt á að búa til gagnagrunn yfir tengiliði sem nýst geta listamönnum við skipulagningu tónleika úti á landi.
Kraumur og Rás 2 hafa hafið samstarf í kringum Innrásina. Útvarp allra landsmanna mun styðja myndarlega við átakið með því að kynna og auglýsa þá tónleika sem fara fram á landsbyggðinni í sumar og haust. Rás 2 og starfsmenn stöðvarinnar luma jafnframt á reynslusögum sem eflaust geta nýst mörgum, en stöðin hefur síðastliðin þrjú ár geyst um landsbyggðina þar sem þeir hafa Rokkað og Plokkað hringinn með mörgum fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar af yngri kynslóðinni. Má þar nefna Ólöfu Arnalds, Pétur Ben, Lay Low, Ampop, Hermigervil og Diktu. Hljómsveitirnar Sign, Dr. Spock og Benny Crespo’s Gang Rokkuðu hringinn núna í apríl – með stuðningi Kraums við listamennina.
Umsóknir
Hér með er auglýst eftir hugmyndum og umsóknum frá hljómsveitum og listamönnum sem hyggja á tónleikahald á landsbyggðinni. Ekki verður farið fram á útfyllingu umsóknareyðublaða eða langar verkefnalýsingar. Tekið er við umsóknum frá jafnt einum flytjanda (hljómsveit/listamanni) sem og fleirum í samfloti. Umsóknir skal senda á e-mail með eftirfarandi upplýsingum:
a) Nafn hljómsveita/r eða listamanns/a ásamt stuttum upplýsingatexta
b) Nafn, sími, e-mail tengiliðs
c) Fyrirhugaðir tónleikastaðir
E-mail: kraumur@aurorafund.is
Frekari upplýsingar á vef Popplands Rásar 2.
Kraumur
Starfsemi Kraums var sett á laggirnar í upphafi árs af Aurora velgerðasjóð. Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Á yfirstandandi starfsári er Kraumur m.a. að styðja við útrás og tónleikaferð Mugison, tónleikahald Amiinu innanlands, verkefni Víkings Heiðars Ólafssonar og plötuútgáfu Skakkamanage, Celestine, Diktu, FM Belfast, Ólafar Arnalds og Elfu Rúnar Kristinsdóttur.
Frekari upplýsingar
Eldar Ástþórsson, framkvæmdarstjóri Kraums S: 869 8179
eldar.astthorsson@aurorafund.is

Lettie Stuart Pottery School Exhibition

Lettie Stuart Pottery School Exhibition

We are delighted to share the resounding success of the recent Pottery School Exhibition held at Lettie Stuart Pottery in Waterloo on March 14th. The event, hosted by Aurora Foundation, was a vibrant celebration of the remarkable progress achieved by the students of...

Business Model Canvas training – IR Bootcamp

Business Model Canvas training – IR Bootcamp

On March 12th, the Aurora Foundation Training Center buzzed with entrepreneurial energy as we hosted a dynamic Business Model Canvas training session tailored for IR Bootcamp startup businesses. Facilitated by our adept Aurora Impact Programme Manager, Mavis Madaure,...

Successful compelition of ICT Webpage Development Overview Course

Successful compelition of ICT Webpage Development Overview Course

We are excited to share the successful conclusion of our recent 2-week ICT Web Development overview and outline course, finalized on February 27th at the Aurora Office Training Center. Participants joined us on February 12th for a week-long exploration of ICT Webpage...